Persónuvernd
Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 6. september 2026.
Þessi síða lýsir í mannamáli hvernig vefsida.app vinnur persónuupplýsingar. Hún kemur ekki í staðinn fyrir lögfræðiráðgjöf — hafðu samband á hallo@vefsida.app ef þú þarft formlegri samning (t.d. vinnslusamning/DPA).
1. Hver vinnur gögnin
vefsida.app (rekið af vefsida.is) er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem safnast þegar þú notar vefsida.app sjálft (t.d. stofnar aðgang á vefsida.app/skra). Fyrir gögn sem lenda inni í kerfi sem þú lætur smíða (t.d. viðskiptavinir þínir sem senda inn beiðnir í þinni gátt) ert þú vinnsluaðili/ábyrgðaraðili þeirra gagna gagnvart þínum notendum — vefsida.app er þar vinnsluaðili (processor) fyrir þín gögn.
2. Hvaða gögn söfnum við
- Netfang og lykilorð (dulkóðað) þegar þú stofnar aðgang.
- Nafn fyrirtækis/verkefnis sem þú skráir.
- Lýsingar á kerfum sem þú biður um („teikningar“) og samskipti við AI-aðstoðina.
- Gögn sem lenda í kerfum sem eru byggð fyrir þig (t.d. beiðnir viðskiptavina þinna í Viðskiptavinagáttinni) — þessi gögn eru einangruð við þitt kerfi og enginn annar notandi hefur aðgang að þeim.
- Greiðsluupplýsingar við kaup á áskrift (unnar af Teya/Borgun, ekki geymdar hjá okkur).
- Nafnlaus vefgreiningargögn (síðuheimsóknir) — sjá kafla 4.
3. Hvar gögnin eru geymd
Öll gagnagrunns- og innskráningargögn eru vistuð hjá Supabase, á netþjónum innan ESB (Írland). Tölvupóstar eru sendir í gegnum SMTP2GO. Greiðslur fara í gegnum Teya (Borgun) og bókhaldsfærslur í Payday — bæði íslensk fyrirtæki.
4. Vefkökur og greining
Við notum stats.is fyrir nafnlausa vefgreiningu (t.d. fjölda heimsókna) og nauðsynlegar innskráningarköku frá Supabase til að halda þér innskráðum. Við notum engar auglýsingakökur og seljum engin gögn til þriðja aðila.
5. Réttindi þín
Þú getur beðið um afrit af, leiðréttingu á, eða eyðingu þinna gagna hvenær sem er með því að senda okkur línu á hallo@vefsida.app.
