iPhone og AndroidFyrir WooCommerce og Shopify
Netverslunin þín.Appið þitt
Gerðu viðskiptavinum auðveldara að versla hjá þér aftur.
Vefsida.app breytir netversluninni þinni í eigið app fyrir iPhone og Android. Haltu vörunum tengdum núverandi verslun og sendu viðskiptavinum tilboð, nýjar vörur og áminningar beint í símann.
Eða skoðaðu sýniapp- iPhone og Android
- Undir þínu vörumerki
- Tengt netversluninni þinni

Lopapeysa Hekla
24.900 kr.
Á lager
Handprjónuð úr íslenskri ull. Hlý, létt og endingargóð.
Karfan er tóm
Greitt í greiðsluferli verslunarinnar
Af hverju app?
Þú ert þegar með netverslun. Appið fær fólk til að koma aftur.
Vefverslunin nær í nýja viðskiptavini. Appið gerir þeim sem hafa keypt áður auðveldara að versla aftur.
Auðveldara að versla aftur
Verslunin er á heimaskjánum hjá viðskiptavininum, með vörur, körfu og aðganginn hans einum smelli frá.
Beint samband við viðskiptavini
Sendu tilboð, nýjar vörur og áminningar beint í símann til þeirra sem hafa samþykkt tilkynningar.
Áfram í núverandi kerfi
Vörur, verð, birgðir og greiðsluferli koma úr versluninni sem þú notar nú þegar. Ekkert tvöfalt utanumhald.
Frá verslun í app
Svona virkar þetta
- 01
Skönnun
Sláðu inn slóð verslunarinnar. Við lesum merki, liti og vörur og sýnum þér appið strax.
- 02
Tenging
Settu upp WordPress-tengilinn eða samþykktu Shopify-appið. Vörur, karfa og greiðsla verða áfram í versluninni.
- 03
Hönnun
Raðaðu forsíðu, valmynd og eiginleikum. Skoðaðu allar breytingar í þínum eigin síma.
- 04
Útgáfa
Við undirbúum smíði, tákn, kynningarsíðu og skjámyndir og aðstoðum við innsendingu. Appið er gefið út á þínum eigin Apple- og Google-aðgöngum.
App fyrir iPhone og Android
Þægileg verslunarupplifun í símanum
Appið er hannað fyrir síma: hraðar vörusíður, leit og karfa. Verslunin þín er áfram uppspretta varanna, verðanna og pantananna.
Hröð vöruleit
Vöruflokkar, vörusíður og leit eru hönnuð fyrir síma, með myndum í réttri stærð.
Núverandi greiðsluferli
Viðskiptavinir greiða í greiðsluferli verslunarinnar — Shopify Checkout eða greiðslugáttum WooCommerce. Greiðslugáttin og samningarnir haldast óbreyttir.
Viðskiptavinaaðgangar
Viðskiptavinir skrá sig inn með aðganginum sem þeir eiga þegar í versluninni og sjá pantanir sínar.
Ýtitilkynningar
Sendu herferðir og sjálfvirk skilaboð um yfirgefnar körfur, vörur sem koma aftur á lager og stöðu pantana.
Breytingar án uppfærslu
Breyttu útliti og efni án þess að viðskiptavinir þurfi yfirleitt að uppfæra appið.
Íslenska og enska
Appið, kynningarsíðan og stjórnborðið eru á íslensku og ensku frá fyrsta degi.
Þitt app
Gefið út undir þínu vörumerki
Appið er gefið út á þínum eigin Apple- og Google-aðgöngum. Þú átt kynningarsíðuna, umsagnirnar og sambandið við viðskiptavinina — og við sjáum um tæknilegu vinnuna.
Þú sérð um
- Að tengja verslunina — það tekur nokkrar mínútur
- Að velja útlit, liti og efni forsíðunnar
- Að stofna Apple- og Google-aðganga — við leiðum þig í gegnum það
- Að samþykkja appið áður en það fer í búðirnar
Við sjáum um
- Smíði appsins fyrir iPhone og Android
- Tákn, opnunarskjá, kynningarsíðu og skjámyndir
- Innsendingu og svör við athugasemdum frá Apple og Google
- Rekstur, uppfærslur og aðstoð á íslensku
Öryggi og traust
Öruggt, og rekið af íslensku fyrirtæki.
Vefsida.app er þróað og rekið af Novamedia ehf. Kerfið er hannað þannig að lyklar verslunarinnar, greiðslur viðskiptavina og gögnin þín séu varin — og við segjum nákvæmlega hvernig.
Rekið af
Novamedia hannar, smíðar og rekur vefi, öpp og hugbúnað fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir. Þegar þú þarft aðstoð talarðu við fólkið sem smíðaði kerfið.
Novamedia ehf. · kt. 540606-2260 · hallo@novamedia.is
Um NovamediaEngir lyklar í appinu
Aðgangslyklar að versluninni fara aldrei inn í appið. Þeir eru geymdir dulkóðaðir og aðeins notaðir á okkar netþjónum.
Greiðslur haldast hjá versluninni
Viðskiptavinir greiða í greiðsluferli verslunarinnar. Við sjáum hvorki né geymum kortaupplýsingar.
Breytingar sem enginn getur falsað
Útlit og efni sem appið sækir er stafrænt undirritað, svo enginn getur breytt því á leiðinni til viðskiptavina.
Varin innskráning
Lykilorð eru aldrei geymd í læsilegu formi og innskráning er varin gegn ágiskunum.
Staðfestir viðskiptavinir
Kennitala er staðfest í Þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá við skráningu og aðgangur hvers notanda er bundinn hlutverki hans.
Gögn innan EES
Gagnagrunnurinn er hýstur innan Evrópska efnahagssvæðisins og öll samskipti fara um dulkóðaða tengingu (HTTPS).
Tæknilegar upplýsingar
- Aðgangsupplýsingar verslana, vefkróka-leyndarmál og lyklar fyrir App Store Connect og Google Play eru dulkóðuð með AES-256-GCM (sér gagnalykill fyrir hverja færslu, lyklaskipti studd).
- Stillingar til appsins eru undirritaðar með Ed25519; appið hafnar óundirrituðum eða breyttum stillingum.
- Lykilorð eru geymd með scrypt og salti; endurstillingar- og innskráningartenglar eru einnota og renna út.
- WooCommerce REST-lyklar eru aldrei notaðir; tengingin fer um sérstaka viðbót með leyndarmáli sem aðeins netþjónninn þekkir.
- Gagnagrunnur (PostgreSQL) í Írlandi, öll umferð um HTTPS, og hver aðgerð er bundin hlutverki notanda innan fyrirtækis.
Við gerum ekki tilkall til vottana á borð við SOC 2 eða ISO 27001.
Sérsmíði
Þarftu alveg sérsniðið app?
Vefsida.app er gert fyrir netverslanir. Ef þú þarft eitthvað annað — bókanir, vildarklúbb, tengingu við eigin kerfi eða app frá grunni — hannar og forritar teymi Novamedia það fyrir þig.
- iOS og Android
- Tengingar við þín kerfi
- Hönnun, smíði og rekstur
FAQ
Spurningar
Þarf ég þróunaraðganga hjá Apple og Google?
Já. Öppin eru gefin út af þínum eigin Apple Developer Program- og Google Play Console-aðgöngum. Við leiðum þig í gegnum uppsetninguna. Gjöldin greiðast beint til Apple og Google og eru ekki hluti af okkar verði.
Hvað tekur langan tíma að komast í búðirnar?
Þegar verslunin er tengd og hönnunin tilbúin tekur smíðin innan við sólarhring. Yfirferðartími er ákveðinn af Apple og Google og er breytilegur. Við getum ekki tryggt samþykki eða tímasetningu, en við undirbúum innsendinguna vandlega og vinnum úr öllum athugasemdum.
Þarf ég að gefa út uppfærslu fyrir hverja breytingu?
Nei. Hönnun, efni forsíðu, valmynd og flestar stillingar berast sem stilling. Breytingar á sjálfu appinu, eins og nýtt app-tákn, krefjast nýrrar smíði sem við undirbúum fyrir þig.
Virkar þetta með viðbótunum mínum og þemanu?
Samhæfisathugunin fer yfir verslunina áður en þú greiðir. Flestar hefðbundnar WooCommerce- og Shopify-uppsetningar virka beint; óvenjulegar greiðslu- eða vöruviðbætur eru merktar til yfirferðar.
Hvað gerist ef ég segi upp?
Áskriftin gildir út greitt tímabil. Eftir það virkar appið áfram í 14 daga. Að þeim tíma liðnum birtir appið viðskiptavinum skilaboð um að það sé ekki í boði í bili; það helst þó í App Store og Google Play á þínum aðgangi. Stillingarnar eru geymdar og þú getur virkjað áskriftina aftur hvenær sem er.
Sjáið þið um greiðslurnar?
Nei, og það er viljandi. Viðskiptavinir greiða í núverandi greiðsluferli verslunarinnar, svo greiðslugáttin, samningarnir og uppgjörið haldast óbreytt. Við geymum aldrei kortaupplýsingar.
Sjáðu verslunina þína sem app
Forskoðunin tekur um mínútu og þú þarft ekki að skrá þig.
Frá 19.900 kr. á mánuði + 49.900 kr. uppsetning, án vsk. Sjá verð og pakka