Fara í efni

Sérsmíði frá Novamedia ehf.

Sérsniðið app, smíðað fyrir þinn rekstur.

Þegar tilbúin lausn dugar ekki hannar og forritar teymi Novamedia app frá grunni — fyrir iOS og Android, tengt þeim kerfum sem reksturinn byggir á.

Tvær leiðir

Hvor leiðin hentar þér?

Vefsida.app

Tilbúin áskriftarþjónusta fyrir netverslanir.

  • Þú ert með WooCommerce- eða Shopify-verslun
  • Þú vilt app á vikum, ekki mánuðum
  • Fast mánaðargjald og engin forritun af þinni hálfu
  • Vörur, karfa og greiðsla haldast í versluninni
Sjá verð

Sérsmíði

App hannað og forritað fyrir þínar þarfir.

  • Þú ert ekki með netverslun eða þarft meira en verslunarapp
  • Þú þarft tengingu við eigin kerfi, t.d. birgða-, bókunar- eða viðskiptamannakerfi
  • Sérstök virkni eins og bókanir, aðildarkort, vildarkerfi eða innri öpp fyrir starfsfólk
  • Hönnun og upplifun sem byggir alfarið á þínu vörumerki
Fá mat á verkefnið

Það sem við smíðum

Frá hugmynd að útgefnu appi

Öpp fyrir iOS og Android
Eitt verkefni, bæði stýrikerfin — hönnuð fyrir síma og spjaldtölvur.
Tengingar við þín kerfi
Bókhald, birgðir, bókanir, innskráning og önnur kerfi tengd í gegnum öruggan bakenda.
Bakendi og stjórnborð
Stjórnborð þar sem þú breytir efni, sérð tölfræði og sendir ýtitilkynningar.
Bókanir og áskriftir
Tímabókanir, miðasala og áskriftir með greiðslum í gegnum viðurkenndar greiðslugáttir.
Vildar- og aðildarkerfi
Stafræn aðildarkort, punktar og tilboð sem halda viðskiptavinum við efnið.
Rekstur og viðhald
Við fylgjum appinu eftir útgáfu: uppfærslur fyrir nýjar útgáfur iOS og Android, vöktun og frekari þróun.

Ferlið

Svona vinnum við

  1. 01

    Spjall

    Stuttur fundur án skuldbindingar þar sem við förum yfir markmið, notendur og kerfin sem þarf að tengja.

  2. 02

    Mat og tilboð

    Þú færð skriflegt mat á umfangi, tímalínu og kostnaði áður en vinna hefst.

  3. 03

    Hönnun og smíði

    Við vinnum í áföngum og þú prófar appið í eigin síma jafnóðum.

  4. 04

    Útgáfa og rekstur

    Við undirbúum innsendingu í App Store og Google Play á þínum aðgöngum og sjáum um viðhald. Samþykki er alltaf í höndum Apple og Google.

Hafa samband

Segðu okkur frá verkefninu

Lýstu hugmyndinni í nokkrum setningum. Við svörum innan eins virks dags.

Valfrjálst
Valfrjálst

FAQ

Algengar spurningar

Hvað kostar sérsmíðað app?

Það fer eftir umfangi: fjölda skjáa, tengingum og hvort bakendi fylgir. Eftir fyrsta fund færðu skriflegt mat svo þú veist kostnaðinn áður en vinna hefst.

Get ég byrjað á Vefsida.app og bætt við síðar?

Já. Sérlausn Vefsida.app getur innihaldið sérsmíðaða skjái og tengingar ofan á verslunarappið. Ef þarfirnar vaxa umfram það ræðum við sérsmíði.

Takið þið við appi sem er þegar til?

Segðu okkur frá appinu. Við metum stöðu kóðans og hvort skynsamlegra sé að halda áfram með hann eða byggja nýtt.