WooCommerce
App fyrir WooCommerce-verslunina þína
Vörur, flokkar, karfa og innskráning viðskiptavina koma beint úr WooCommerce. Viðskiptavinir greiða með sömu greiðsluleiðum og á vefnum.
Svona virkar tengingin
- 01
Settu upp Vefsida-viðbótina í WordPress. Það tekur nokkrar mínútur og stjórnborðið leiðir þig í gegnum það.
- 02
Vörur, verð og birgðastaða í appinu koma beint úr WooCommerce, svo þú heldur áfram að vinna á sama stað og áður.
- 03
Þegar viðskiptavinur greiðir opnast greiðsluferli verslunarinnar með körfuna tilbúna, svo greiðslugáttir og sendingarreglur virka eins og áður.
- 04
Áður en þú greiðir förum við yfir viðbætur og þema og látum vita ef eitthvað þarf aðlögun.
Tæknilegar upplýsingar
- Pörun fer fram með einnota kóða og viðbótin og Vefsida.app skiptast á undirrituðu leyndarmáli. Engir WooCommerce REST-lyklar eru búnir til eða geymdir í appinu.
- Vörur og karfa nota opna WooCommerce Store API, sama API og blokkir þemans nota.
- Greiðsla opnar greiðsluferli WooCommerce með körfuna tilbúna; Vefsida.app meðhöndlar aldrei greiðsluupplýsingar.
Kröfur
- WordPress 6.4 eða nýrra og WooCommerce 8.5 eða nýrra
- HTTPS á versluninni
- Heimild til að setja upp viðbót
Viðbætur og þemu
Áður en þú greiðir skoðar samhæfisathugunin greiðslu-, sendingar- og vöruviðbætur. Allt sem gæti þurft aðlögun er talið upp með skýringu.