Verð
Eitt mánaðargjald fyrir appið þitt — bæði fyrir iPhone og Android. Sama uppsetningargjald í báðum pökkum.
Forskoðun
Sjáðu verslunina þína sem app — ókeypis.
Skannaðu verslunina, tengdu hana og hannaðu appið með lifandi forskoðun í eigin síma. Veldu áskrift þegar þú ert tilbúin(n) að gefa það út.
- Engin greiðslukort
- Engin binding
- Tilbúið á um mínútu
App
Fyrir verslanir sem vilja eigið app
+ 49.900 kr. uppsetning
- App fyrir iPhone og Android
- Þitt vörumerki, tengt versluninni
- Aðstoð við fyrstu útgáfu
- Ýtitilkynningar til allra notenda appsins
- Sjálfvirkar pöntunartilkynningar
- Íslenska og enska í appinu
Vöxtur
VinsælastFyrir verslanir sem vilja nýta appið í virkri markaðssetningu
+ 49.900 kr. uppsetning
Allt í App, auk:
- Markhópar og tímasettar sendingar
- Sjálfvirkar áminningar um yfirgefnar körfur, vörur sem koma aftur á lager og verðlækkanir
- Kveðjur til nýrra notenda og tilboð til þeirra sem hafa ekki verslað lengi
- Ítarlegar mælingar á vörum og leitum
- Allt að 5 notendur í teymi og forgangsþjónusta
Sérlausn
Fyrir verslanir sem þurfa sérstaka virkni eða tengingar
Uppsetning eftir umfangi
- Sérþróun og sérsmíðaðir skjáir
- Tengingar við eigin kerfi
- Fleiri öpp eða verslanir
- Fastur tengiliður
Hver áskrift nær yfir eitt app sem er gefið út bæði í App Store og Google Play. Uppsetning er greidd einu sinni, með fyrsta reikningi. Verð eru án vsk.
Gjöld fyrir Apple Developer Program og Google Play Console greiðast beint til Apple og Google og eru ekki innifalin.
Áskriftir eru reikningsfærðar rafrænt af Novamedia ehf. (kt. 540606-2260).
Hvað felst í uppsetningunni?
Uppsetningargjaldið er það sama í báðum pökkum, því vinnan við fyrstu útgáfu er sú sama.
- Uppsetning smíðar fyrir iPhone og Android
- App-tákn og opnunarskjár í þínum litum
- Kynningarsíða og skjámyndir fyrir App Store og Google Play
- Fyrsta innsending í báðar búðir og úrvinnsla athugasemda
- Leiðsögn við að stofna Apple- og Google-aðganga
Bera saman pakka
| App | Vöxtur | Sérlausn | |
|---|---|---|---|
| iPhone og Android | ✓ | ✓ | ✓ |
| Eigið vörumerki og verslunartenging | ✓ | ✓ | ✓ |
| Aðstoð við fyrstu útgáfu | ✓ | ✓ | ✓ |
| Almennar ýtitilkynningar | ✓ | ✓ | ✓ |
| Pöntunartilkynningar | ✓ | ✓ | ✓ |
| Markhópar og tímasettar sendingar | — | ✓ | ✓ |
| Sjálfvirkar markaðsherferðir | — | ✓ | ✓ |
| Ítarlegar mælingar | — | ✓ | ✓ |
| Notendur í teymi | 1 | 5 | Eftir samkomulagi |
| Sérþróun og sérstakar tengingar | — | — | Eftir umfangi |
Spurningar um verð
Er eitt gjald fyrir bæði iPhone og Android?
Já. Mánaðargjaldið nær yfir eitt app sem er gefið út bæði í App Store og Google Play. Gjöld Apple (99 USD á ári) og Google (25 USD einu sinni) greiðast beint til þeirra og eru ekki hluti af okkar verði.
Get ég skipt um pakka síðar?
Já. Þú getur farið úr App í Vöxt hvenær sem er og það tekur gildi strax. Lækkun tekur gildi í lok greiðslutímabils.
Hvað ef Apple eða Google hafnar appinu?
Við förum yfir athugasemdirnar, gerum nauðsynlegar breytingar og sendum aftur inn. Breytingar vegna efnis eða stefnu verslunarinnar gætu þurft þína aðkomu. Við getum ekki tryggt samþykki, en það er innifalið í uppsetningunni að vinna úr athugasemdum.
Hvað eru sjálfvirkar markaðsherferðir?
Tilbúin skilaboð sem fara af stað sjálfkrafa: kveðja til nýrra notenda, áminning um yfirgefna körfu, tilkynning þegar vara kemur aftur á lager eða lækkar í verði, og tilboð til þeirra sem hafa ekki verslað lengi. Þú velur hvaða skilaboð eru virk og hvernig þau eru orðuð. Pöntunartilkynningar eru í báðum pökkum.
Hvað gerist ef ég segi upp?
Áskriftin gildir út greitt tímabil. Eftir það virkar appið áfram í 14 daga. Að þeim tíma liðnum birtir appið viðskiptavinum skilaboð um að það sé ekki í boði í bili; það helst þó í App Store og Google Play á þínum aðgangi. Stillingarnar eru geymdar og þú getur virkjað aftur hvenær sem er.